top of page

Viltu vera hluti af Thera Studio?

Við erum að byggja upp heilsusamfélag með áherslu á kvenheilsu.
Við höfum lagt mikinn metnað í að skapa fallegt og nærandi umhverfi og leitum að jákvæðu og metnaðarfullu fólki sem vill taka þátt í að móta einstakt samfélag með okkur.

Hóptímakennarar

Við leitum að þjálfurum sem hafa ástríðu fyrir hreyfingu og vilja skapa góða upplifun, tengsl og samfélag í vel útbúnum hóptímasal.

Fræðsluerindi

Við leitum að fagfólki sem vill miðla þekkingu sinni í gegnum fræðsluerindi, námskeið eða vinnustofur sem styðja við heilsu, vellíðan og valdeflingu kvenna á öllum stigum lífsins.

Af hverju að starfa með okkur?

Untitled design (17).png

Taktu þátt í mótun

Taktu þátt í að móta framtíð kvenheilsu.
Vertu hluti af samfélagi sem hefur það að markmiði að efla heilsu, vellíðan og stuðning við konur á öllum stigum lífsins.

Untitled design (13).png

Nærandi rými

Hlýlegt og róandi umhverfi sem skapar skjól frá amstri dagsins og styður við vellíðan og endurheimt.

Untitled design (16).png

Samfélag

Við erum að byggja upp samfélag þar sem konur styðja við konur.

Untitled design (15).png

Persónuleg nálgun

Við leggjum áherslu á tengsl, traust og góða upplifun fyrir bæði kennara, fagfólk og gesti.

Hefur þú áhuga?

Við viljum gjarnan heyra frá þér. Sendu okkur upplýsingar um þig, reynslu þína og hvernig þú sérð fyrir þér að taka þátt í Thera Studio.

Við hlökkum til að heyra frá þér.

Við hlökkum til að heyra frá þér.

bottom of page