top of page

Hera Rut

Sjúkraþjálfari, hóptímaþjálfari og meðstofnandi Thera Studio

TheraStudio-934_edited.jpg

Hera hefur yfir 15 ára reynslu af hópþjálfun og víðtæka sérhæfingu á sviði kvenheilsu, þjálfunar og langvinnra verkja.

TheraStudio-918.jpg

Thelma Rut

Sjúkraþjálfari, hóptímaþjálfari og meðstofnandi Thera Studio

Thelma hefur yfir 10 ára reynslu af hópþjálfun og víðtæka sérhæfingu á sviði kvenheilsu, ketilbjölluréttindi og reynslu á taugarendurhæfingu og Whiplash. 

fyrsti póstur (1)_edited.jpg

Anna Stefáns

Hóptímaþjálfari, Barre menntun

Anna er Barre-menntaður hóptímaþjálfari með reynslu af fjölbreyttum styrktartímum og leggur áherslu á að mæta hverri konu þar sem hún er stödd.

fyrsti póstur (3)_edited.png

Hóptímaþjálfari, Jákvæð Sálfræði

Lilja Ketils

6T8A2744.jpg

Íris Ásmundar

Hóptímaþjálfari, Atvinnudansari

Íris er menntuð danslistakona, og með Barre- og Pilates menntun ásamt alþjóðlega reynslu á þjálfun og leggur áherslu á meðvitaðar hreyfingu

Inga María

Ljósmóðir, fræðslu & hóptímaþjálfari

fyrsti póstur (2).jpg

Inga er ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur með víðtæka reynslu af meðgöngu-, fæðingar - og ungvarnavernd og höfundur bókarinnar Fæðingin ykkar

Lilja er Somatic Yoga- , Yin- og Nidra jógakennari. Qigong leiðari og markþjálfi sem leggur áherslu á tengsl líkama, hugar og tilfinninga.

fyrsti póstur (4)_edited_edited.png

Þórdís Björk

Hóptímaþjálfari, Markmannsþjálfari

Rebekka Guðmunds

IMG_2045.JPG

Hóptímaþjálfari, Atvinnudansari

Rebekka er atvinnudansari og menntaður Pilateskennari frá Pilates Center Stockhol, 
með BA-gráðu í samtímadansi og reynslu af dans- og Pilateskennslu

Þórdís hefur kennt fjölbreytta hóptíma í nær 8 ár og er markmannsþjálfari með UEFA B gráðu og sérhæfingu í þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu

Þjálfarateymið

Faglegt og fjölbreytt teymi sem leggur áherslu á gæði, nærveru og vellíðan í hverjum tíma. 

Hera Rut Hólmarsdóttir

Sjúkraþjálfari, hóptímaþjálfari og meðstofnandi

Hera er sjúkraþjálfari, þriggja barna móðir, reyndur hóptímaþjálfari og meðstofnandi Thera Studio.
Hún hefur yfir 15 ára reynslu af hóptímaþjálfun og víðtæka sérhæfingu á sviði kvenheilsu, þjálfunar og langvinnra verkja.

Menntun og sérhæfing

• B.S. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands, 2014
• Kvenheilsa
• Langvinnir og þrálátir verkir
• Verkjafræði og verkjaendurferlun
• Heildræn endurhæfing
• Þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu
• Styrktar- og þolþjálfun (Strength & Conditioning)
• Meðvituð og markviss hreyfing

Starfsreynsla

2014–2025 – Reykjalundur: Sjúkraþjálfari á verkjasviði og sviðsstjóri klínískrar kennslu sjúkraþjálfaranema við Háskóla Íslands.

2018–2019 – Bakleikfimi Hörpu Helga: Hóptímaþjálfari.

2015 - Landspítali Fossvogi: Sjúkraþjálfari á A7/B7 og kennsla í bakskóla.

Frá 2010 - World Class: Fjölbreytt hóptímakennsla, m.a. Fit Pilates, Core Power, Core Balance, Spinning, Betra bak, bakleikfimi og styrktarþjálfun.

Kennslu- og meðferðarnálgun

Hera leggur áherslu á heildræna, faglega og einstaklingsmiðaða nálgun. Í starfi sínu hefur hún aðstoðað fólk við að öðlast aukinn skilning á líkamanum og verkjum, byggja upp styrk og endurheimta traust á eigin getu.

Í kennslunni sameinar hún þekkingu sína sem sjúkraþjálfari við langa reynslu af hóptímaþjálfun. Hún leggur áherslu á meðvitaða og skemmtilega hreyfingu þar sem hver þátttakandi fær að vinna út frá eigin líkama og forsendum.

Endurmenntun

2026
• Pre and Postnatal Barre Instructor
• GGS Pre- and Postnatal Coach

2025
• Functional Training with Focus on the Pelvic Floor and Diastasis Recti Abdominis
• Physio Flow – Hreyfiflæði

2024
• Pain Reprocessing Therapy (PRT) – verkjaendurferlun
• Pregnancy and Postpartum Corrective Exercise Specialist
• International Conference on Functional Neurological Disorder

2022
• Strength & Conditioning fyrir sjúkraþjálfara
• Pain Science Education
• Advanced Motor Control Training fyrir mjóbaks- og grindarverki

2019
• Acceptance and Commitment Therapy (ACT) í meðferð við þrálátum verkjum
• Insular – Move, Slide, Breathe
• Fascia – bandvefur í sjúkraþjálfun

2018
• Understanding Pain: From Biology to Care
• Mobilisation with Movement – efri og neðri hluti líkamans

2015
• Building the Ultimate Back: From Rehabilitation to High Performance
• Nálastungumeðferð fyrir sjúkraþjálfara
• Tengsl brjóstkassa og grindar

Það besta við starfið

„Að sjá fólk gera hluti sem það hélt að það gæti aldrei gert. Það er fátt skemmtilegra en að fylgjast með sjálfstraustinu vaxa samhliða styrknum.“

Thelma Rut Hólmarsdóttir

Sjúkraþjálfari, Hóptímaþjálfari, Meðstofnandi 

Thelma er sjúkraþjálfari, tveggja barna móðir og meðstofnandi Thera Studio. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á heilsu, hreyfingu og þjálfun og hefur aflað sér sérhæfingar á sviði kvenheilsu og þjálfunar á meðgöngu og eftir fæðingu. Thelma hefur jafnframt reynslu af endurhæfingu einstaklinga með ýmsa taugasjúkdóma eftir störf sín á taugasviði Reykjalundar.

Menntun og sérhæfing

• B.S. í sjúkraþjálfun, 2019
• M.S. í sjúkraþjálfun, 2022
• Pregnancy and Postpartum Corrective Exercise Specialist
• GGS Pre- and Postnatal Coach
• Agatsu Fitness Kettlebell Foundation
• Agatsu Fitness Kettlebell Instructor

Thelma hefur sérstakan áhuga á kvenheilsu, þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu, styrktarþjálfun og virkri endurhæfingu.

Starfsreynsla

2022–2025 – Reykjalundur: Sjúkraþjálfari í þverfaglegu teymi á taugasviði. Thelma starfaði með einstaklingum með fjölbreytta taugasjúkdóma og þróaði meðal annars fræðslu og hóptímakennslu fyrir einstaklinga með Parkinson. Samhliða störfum sínum á Reykjalundi starfaði hún sem verkmenntunarkennari sjúkraþjálfaranema við Háskóla Íslands.

Frá 2015 – Hóptímaþjálfun: Thelma hóf að kenna hóptíma hjá World Class árið 2015. Hún hefur einnig kennt fjölbreytta hóptíma á Reykjalundi.

Kennslu- og meðferðarnálgun

Thelma vinnur út frá Functional Training og leggur áherslu á styrk, þol og snerpu. Hún sameinar faglega þekkingu sína sem sjúkraþjálfari við langa reynslu af hóptímaþjálfun og leggur áherslu á markvissa, fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu. Í kennslunni hvetur hún þátttakendur til að ögra sér á eigin forsendum, byggja upp styrk og upplifa jákvæð áhrif hreyfingarinnar, bæði líkamlega og andlega. Thelma hefur sjálf stundað Functional Training reglulega frá árinu 2018.

Endurmenntun

2026
• GGS Pre- and Postnatal Coach
• Agatsu Fitness Kettlebell Foundation
• Agatsu Fitness Kettlebell Instructor

2024
• Pain Reprocessing Therapy (PRT) – verkjaendurferlun
• International Conference on Functional Neurological Disorder
• Whiplash: Clinically Relevant Physiotherapy Management

2023
• Pregnancy and Postpartum Corrective Exercise Specialist

Það besta við starfið

„Að sjá fólk upplifa mátt hreyfingarinnar, hvort sem það er andlega eða líkamlega. Að tengjast og vinna með öðrum í átt að betri heilsu.“

Anna

Hóptímaþjálfari og Barre-kennari

Það besta við starfið

„Að sjá konur öðlast sjálfstraust, finna öryggi í æfingum og hafa ánægju af hreyfingu.“

Um Önnu

Anna er energískur og jákvæður hóptímaþjálfari sem hefur mikla ánægju af hreyfingu í takt við tónlist. Hún kemur með reynslu úr fjölbreyttri hóptímaþjálfun og leggur áherslu á að skapa hvetjandi og uppbyggilegt andrúmsloft þar sem hver kona fær að vinna út frá sínum forsendum.

Menntun og réttindi

• Barre Teacher Training
• Dale Carnegie

Reynsla

Anna hefur reynslu af fjölbreyttri hóptímaþjálfun og hefur meðal annars kennt HBT, Hot Fit og Buttlift hjá World Class. Hjá Thera Studio kennir Anna kraftmikla tíma þar sem styrkur, stjórn og góð tónlist mætast.

Kennslunálgun

Anna leggur áherslu á að mæta hverri konu þar sem hún er stödd. Við eigum öll misgóða daga og markmið hennar er að hjálpa hverri konu að fá það besta út úr æfingunni á eigin forsendum.

Það besta við starfið

„Að hjálpa konum að upplifa fæðinguna sína sem valdeflandi viðburð. Að þær fari sterkar og fullar sjálfstrausts inn í móðurhlutverkið og að miðla fræðslu og aðferðum sem hjálpa þeim að undirbúa líkama og huga fyrir fæðinguna.“

Um Ingu Maríu

Inga María er ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur með fjölbreytta reynslu af meðgöngu-, fæðingar- og ungbarnavernd.
Hún starfar við meðgöngu- og ungbarnavernd og á fæðingardeildinni á Akranesi. Inga María er jafnframt höfundur og kennari og leggur mikla áherslu á að veita verðandi foreldrum vandaða og aðgengilega fræðslu.

Menntun og réttindi

2016
Hjúkrunarfræðingur

2018
Ljósmóðir

Viðbótarmenntun
• Diplóma í brjóstagjafaráðgjöf
• Vinnur að því að verða Spinning Babies® Certified Birth Professional

Reynsla

Inga María hefur reynslu af störfum á fæðingarvakt, meðgöngu- og sængurlegudeild og Vökudeild Landspítalans.
Hún starfar nú við meðgöngu- og ungbarnavernd og á fæðingardeildinni á Akranesi.
Áður starfaði hún í Björkinni og á Fæðingarheimili Reykjavíkur.

Fræðsla og sérhæfing

Inga María er höfundur bókarinnar „Fæðingin ykkar“, handbókar fyrir verðandi foreldra.
Hún kennir jafnframt vefnámskeið í fæðingarfræðslu sem byggir á efni bókarinnar.
Í starfi sínu leggur hún áherslu á að miðla fræðslu og hagnýtum aðferðum sem hjálpa konum að undirbúa bæði líkama og huga fyrir fæðinguna.

Inga María

Ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og höfundur

Það besta við starfið

„Að fá að vera hluti af þeirri stund sem fólk gefur sér til að styrkja líkama og huga. Það er ótrúlega gefandi þegar þátttakendur finna aukinn styrk, meiri vellíðan eða einfaldlega líður betur eftir tímana. Það er ástæðan fyrir því að ég elska að kenna.“

Um Írisi

Íris er menntuð danslistakona og Barre- og Pilateskennari með alþjóðlega menntun og reynslu.
Hún hefur brennandi áhuga á hreyfingu og góðri heilsu og finnur sig best þegar hún er á hreyfingu. Bakgrunnur hennar úr dansheiminum einkennir kennsluna, þar sem styrkur, líkamsvitund, nákvæmni og flæði mætast.

Menntun og réttindi

• B.A. í ballett og nútímadansi frá Rambert School
• M.A. í Performance & Professional Practices frá University of Salford
• Barre-kennararéttindi frá The Barre Collective í London
• Pilates-kennararéttindi frá Exhale Pilates í London

Reynsla

Íris hefur kennt Barre frá árinu 2020, bæði á Íslandi og erlendis.
Hún kemur með einstaka reynslu úr dansheiminum og nýtir þekkingu sína á líkamsbeitingu, styrk og hreyfiflæði í kennslunni.

Kennslunálgun

Íris leggur áherslu á einstaklingsmiðaða kennslu þar sem hver og einn vinnur út frá sínum líkama, eigin forsendum og markmiðum.
Hún vill skapa öruggt og hvetjandi rými þar sem þátttakendur geta byggt upp styrk, aukið líkamsvitund og fundið ánægju í hreyfingunni.

Íris

Danslistakona, Barre- og Pilateskennari

Það besta við starfið

Að skapa rými þar sem fólk getur staldrað við og tengst sjálfu sér, hvort sem það er í rólegum jógatíma eða kröftugum styrktartíma.
Að sjá einstakling uppgötva eigin styrk, öðlast meira traust á líkamanum og fara úr tíma með meiri ró, sterkari tengingu við sjálfan sig og trú á eigin getu.

Um Lilju

Lilja er þjálfari, markþjálfi og eilífur nemandi með fjölbreyttan bakgrunn í hreyfingu, jóga og heildrænni vellíðan.
Hún hefur brennandi áhuga á tengslum líkama, hugar og tilfinninga og leggur áherslu á að hjálpa fólki að finna aukinn styrk, jafnvægi og vellíðan í eigin líkama.
Lilja er náttúruunnandi og útivistarmanneskja. Hún er jákvæð, orkumikil og einlæg og leggur hjarta sitt í það sem hún tekur sér fyrir hendur.

Menntun og réttindi

• B.Sc. í viðskiptafræði
• Diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði
• Markþjálfi
• Yin- og Nidra-jógakennari
• Somatic-jógakennari
• Qigong-leiðari
• Styrktar- og ketilbjölluþjálfari

Reynsla

Lilja starfar sem þjálfari og hefur leitt jóga, hreyfingu og vellíðan bæði í fyrirtækjum og á viðburðum.
Fjölbreytt menntun hennar og reynsla gerir henni kleift að flétta saman styrktarþjálfun, meðvitaða hreyfingu, öndun og slökun á aðgengilegan og heildrænan hátt.

Kennslunálgun

Lilja leggur áherslu á að skapa hlýlegt og öruggt rými þar sem fólk getur staldrað við, tengst sjálfu sér og mætt líkamanum þar sem hann er hverju sinni.
Hvort sem um er að ræða rólegan jógatíma eða kraftmikla styrktaræfingu hvetur hún þátttakendur til að hlusta á líkamann, byggja upp traust og finna hreyfingu sem styður við þeirra eigin vellíðan.

Lilja Ketils

Jóga-, styrktar- og vellíðunarþjálfari

Það besta við starfið

Það besta við að vera þjálfari er að hvetja aðra til að hreyfa sig og fylgjast með iðkendum finna fyrir ávinningnum af því sem við gerum í tímunum.

Um Rebekku

Rebekka er Pilatesþjálfari og atvinnudansari með mikla ástríðu fyrir hreyfingu.
Bakgrunnur hennar í samtímadansi hefur veitt henni sterka líkamsvitund og djúpan skilning á hreyfingu, líkamsbeitingu og flæði. Hún nýtir þá reynslu í kennslunni til að hjálpa þátttakendum að byggja upp styrk, stöðugleika og betri tengingu við líkamann.

Menntun og réttindi

• Pilates Teacher Training Certificate frá Pilates Center Stockholm
• B.A. í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands

Reynsla

Rebekka hefur þriggja ára reynslu af dans- og Pilateskennslu.
Hún sameinar reynslu sína úr atvinnudansi og Pilates í markvissa og fjölbreytta tíma þar sem áhersla er lögð á styrk, stjórn og vandaða líkamsbeitingu.

Kennslunálgun

Rebekka leggur áherslu á nákvæmar og meðvitaðar hreyfingar þar sem hver þátttakandi fær að vinna út frá eigin líkama og forsendum.
Markmið hennar er að skapa hvetjandi andrúmsloft þar sem þátttakendur geta aukið styrk og líkamsvitund, fundið betra flæði í hreyfingum og notið þess að hreyfa sig.

Rebekka

Pilatesþjálfari og atvinnudansari

Það besta við starfið

Að fá að vera hluti af því að gera besta tíma dagsins hjá fólki enn betri með góðri æfingu og góðri tónlist.
Að sjá fólk ná markmiðum sínum, bæði stórum og smáum.

Um Þórdísi

Þórdís er reyndur hóptímaþjálfari, markmannsþjálfari og þriggja barna móðir sem hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir íþróttum og hreyfingu.
Hún hefur tæplega átta ára reynslu af hóptímaþjálfun og nýtir fjölbreyttan íþróttabakgrunn sinn til að skapa kraftmikla, markvissa og skemmtilega tíma.

Menntun og réttindi

• B.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, 2018
• Pre & Postnatal Exercise Specialist frá GGS
• UEFA C-þjálfaragráða, 2024
• UEFA B-þjálfaragráða, 2025

Reynsla

Þórdís hefur tæplega átta ára reynslu af hóptímaþjálfun.
Hún starfar sem stundakennari í ÍAK-náminu í Borgarholtsskóla og sem markmannsþjálfari yngri landsliða í knattspyrnu.
Reynsla hennar úr hóptímaþjálfun, afreksíþróttum og kennslu hefur veitt henni sterkan grunn í markvissri uppbyggingu æfinga og hvetjandi þjálfun.

Kennslunálgun

Þórdís leggur áherslu á kraftmikla og vel uppbyggða tíma þar sem góð tónlist, jákvæð orka og skýr markmið fara saman.
Hún hvetur þátttakendur til að ögra sér á eigin forsendum og fagnar öllum framförum – bæði stórum og smáum.

Þórdís María

Hóptíma- og markmannsþjálfari

bottom of page