top of page
Mömmuþjálfun hjá Thera Studio í Bæjarlind, Kópavogi

MömmurThera Studio

Fagleg þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara í umhverfi sem er sérhannað að þörfum mæðra og barnanna þeirra.

Mömmugrunnur
Barre Mömmur
Sculpt Mömmur
Power Mömmur
Meðgönguþjálfun Push Prep

Mömmugrunnur

Mömmuþjálfun

Meðgönguþjálfun

Tenging , Uppbygging • Styrkur
Öndun og innri þrýstingsstjórn

Sculpt Mömmur
Barre, Pilates og styrkur

Power Mömmur
Styrkur og úthald

Undirbúningur • Styrkur • Slökun
Meðgönguþjálfun eða Push prep

Af hverju mömmuþjálfun?

Meðganga, fæðing og móðurhlutverkið fela í sér miklar líkamlegar og andlegar breytingar. Þó að einkenni eins og bakverkir, grindarverkir, þvagleki eða kviveggsbreytingar séu algeng, þýðir það ekki að konur þurfi einfaldlega að sætta sig við þau.

Markmið okkar er að veita konum fræðslu, stuðning og þjálfun sem hjálpar þeim að byggja upp styrk, sjálfstraust og vellíðan á eigin forsendum.

Æfðu í rými sem nærir þig líkamlega, andlega og félagslega í orlofinu.

​Rými sem þú átt skilið!

Af hverju skiptir þetta máli?

50%

kvenna upplifa verki á meðgöngu

43%

upplifa verki fyrstu vikurnar eftir fæðingu

25%

upplifa langvarandi verki eftir fæðingu

Fræðsla, hreyfing og stuðningur geta haft verulega jákvæð áhrif á bata og almenna vellíðan kvenna á þessum mikilvægu tímamótum.

FRÍÐINDI FYRIR MÆÐUR Í ORLOFI

Orlofskortið

Við þekkjum af eigin reynslu hversu mikil tekjuskerðing getur fylgt fæðingarorlofi.

Þess vegna varð Orlofskortið til, fríðindakort fyrir mæður í orlofi sem æfa hjá Thera Studio.

Samstarfsaðilar Orlofskortsins veita sérstaka afslætti og fríðindi og styðja þannig við mæður sem vilja huga að heilsu sinni og vellíðan á þessu mikilvæga tímabili.

Meðgöngubekkur

Fyrsti sjúkraþjálfara meðgöngubekkur Íslands

Við erum stoltar af því að bjóða upp á sérhannaðan meðgöngubekk sem gerir barnshafandi konum kleift að liggja þægilega á maganum við meðferð og veita þeim þar með meiri slökun.

Finnum námskeiðið sem hentar þér

Hvort sem þú ert á meðgöngu, nýbökuð móðir eða tilbúin fyrir meiri áskoranir, þá er markmið okkar að styðja þig með faglegri leiðsögn og nærandi samfélagi.

bottom of page