top of page

Velkomin í Thera Physio Wellness Studio sem opnar í ágúst að Bæjarlind 12.

Thera Studio er heilsusamfélag fyrir konur þar sem sjúkraþjálfun, hreyfing, fræðsla, samfélag og viðburðir sameinast undir einu þaki í fallegu rými sem er hannað með þarfir kvenna í huga.

Hvað verður í boði?

Í stúdíóinu verður boðið upp á fjölbreytta og árangursríka hópþjálfun.
Við bjóðum upp á almenna hópþjálfun og

meðgöngu- og mömmuþjálfun.

Einnig verður boðið upp á sjúkraþjálfun, fræðslunámskeið og fjölbreytta viðburði sem styðja við heilsu, vellíðan og styrk kvenna.

Af hverju varð Thera Studio til?

Við erum systur og sjúkraþjálfarar, sameinaðar af djúpri sýn á heilsu, hreyfingu og vellíðan kvenna á öllum æviskeiðum.

Við vildum búa til fallegt rými þar sem konur upplifa sig öruggar, séðar og velkomnar. Rými þar sem fagmennska, hlýlegt umhverfi og persónuleg nálgun fara saman.

Rými til að nærast líkamlega, andlega og félagslega.

​Rými sem þú átt skilið!

Lesa meira um okkur hér

"Við viljum ekki bara hjálpa konum að komast í betra form. Við viljum hjálpa þeim að líða betur í eigin líkama."

bottom of page