top of page

Hópþjálfun

Við erum að vanda valið!

Við opnun bjóðum við vandað úrval hóptíma þ.á.m Hot Strength og Yoga Nidra. Samhliða verða reglulega POP-UP tímar í ágúst og september þar  þú getur prófað mismunandi þjálfunarleiðir, kynnst kennurum og fundið þann tíma sem hentar þér best.
 

Á næstu mánuðum munum við síðan bæta jafnt og þétt við fleiri áskriftarleiðum og sérhæfðum kennurum með það að markmiði að skapa fjölbreytt og heildrænt heilsusamfélag.
 

Öll hópþjálfun fer fram í hlýlegu og vönduðu umhverfi þar sem vellíðan, hreyfing og endurheimt eru í fyrirrúmi.
Rýmið verður búið innrauðum hitapanelum sem skapa notalegan hita án þess að loftið verði þungt.

Við kynnum

Hot Strength

Barre, Pilates og Strength

Hot Strength byggir upp styrk, stöðugleika og úthald í tíma sem lætur þig ganga út orkumeiri og sterkari. Árangursrík þjálfun sem þú hlakkar til að mæta í.

Hot Strength sameinar:

Markvissa styrktarþjálfun
Pilates og Barre innblásið flæði
32-34°C infrahita sem eykur hreyfanleika og vellíðan

Kraftmikla tónlist og skemmtilega stemningu

Þjálfari: Hera Rut Hólmarsdóttir, Sjúkraþjálfari & Hóptímakennari
TheraStudio-303.jpg
HVENÆR

Mán og Mið kl 8:30

54201BB3-62C5-4A6B-94F5-9BE87F7DBE59_edited.png
54201BB3-62C5-4A6B-94F5-9BE87F7DBE59_edited.png

Hefst 24.ágúst

20.900 kr.

VERÐ

Greiðir við upphaf námskeiðs

Takmörkuð pláss í hverjum hópi.

Vertu fyrst til að vita
um Pop - up kynningartíma

Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um nýja tíma, námskeið, viðburði og opnun skráninga hjá Thera Studio.

bottom of page