
STYRKUR • Hreyfing • Samfélag
Mömmuþjálfun
Power, Sculpt eða blöndu af báðu
Við bjóðum upp á tvær tegundir mömmuþjálfunar.
POWER MÖMMUR
Kraftmeiri functional styrktarþjálfun þar sem unnið er eftir æfingu dagsins. Áhersla á styrk, úthald og að hver og ein vinni á sínum hraða og eftir sinni getu.
SCULPT MÖMMUR
Stýrðari styrktarþjálfun þar sem hópurinn fylgir þjálfaranum í gegnum tímann. Barre & Pilates áhrif með áherslu á líkamsstjórn, stöðuleika, flæði og styrk.
Námskeið í boði

Power mán + mið kl 10

Sculpt þri + fim kl 10:35

Power + Sculpt þri + fim kl 9:35
Námskeiðin hefjast 24 & 25 ágúst

Hvað er innifalið?

Tveir tímar í viku

Open Gym á föstudögum
Börnin velkomin með

Styðjandi samfélag mæðra

Orlofskort með sérkjörum

POP-tímar á betri kjörum

Þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara

Forgangur í sjúkraþjálfun

Forgangur í skráningu fyrir næsta námskeið
Um þjálfunina og aðstöðuna
Við sameinum faglega þekkingu og fjölbreytta hreyfingu í öruggu og hvetjandi umhverfi. Markmiðið er að gera þig sterkari, orkumeiri og öruggari í eigin líkama, á þínum hraða.
Þjálfarar eru sjúkraþjálfarar með sérþekkingu á þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu.
Hægt að lesa nánar um reynslu þjálfara hér
Barnvæn aðstaða á jarðhæð með góðri vagnaaðstöðu, nægum bílastæðum, skiptiaðstöðu, brjóstagjafapúðum, pelahitara og notalegu rými til að gefa börnum.
